Í gær, fimmtudaginn 2. júlí, tilkynnti menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir hverjir hlytu Nýræktarstyrki Bókmenntasjóð árið 2009. Þetta er í annað sinn sem Nýræktarstyrkjum er úthlutað úr Bókmenntasjóði. Athöfnin fór fram í Nýlistasafninu.
Að þessu sinni eru Nýræktarstyrkir sex talsins, að upphæð tvö hundruð þúsund krónur hver. Alls bárust 27 umsóknir um styrkina. Styrkina hljóta tvö örsagnasöfn, þrjár ljóðabækur og ein barnabók.
Nýræktarstyrkjum er ætlað er styðja við útgáfu á nýjum íslenskum skáldverkum sem hafa takmarkaða eða litla tekjuvon en hafa ótvírætt menningarlegt gildi. Undir þetta svið falla skáldverk í víðri merkingu þess orðs til dæmis sögur, ljóð, barnaefni, leikrit, eða eitthvað allt annað, og leitað var eftir breidd og fjölbreytni í umsóknum.
Bókmenntasjóður vonast til að geta haldið áfram að styðja við fjölbreytta nýrækt í íslenskum skáldskap og bókmenningu á næstu árum.
Nýræktarstyrki hlutu að þessu sinni eftirfarandi verk og höfundar:
Svuntustrengur (örsögur og smásögur)
Höfundur: Sigurlín Bjarney Gísladóttir
Útgefand: Nykur
Tónlist hamingjunnar (örsagnasafn)
Höfundur : Vala Þórsdóttir
Útgefandi:
Loðmar (barnabók)
Höfundar: Embla Vigfúsdóttir og Auður Ösp Guðmundsdóttir
Útgefandi:
Tími hnyttninnar er liðinn (ljóð og prósar)
Höfundur: Bergur Ebbi Benediktsson
Útgefandi:
(ljóðabók)
Höfundur: Gunnar Már Gunnarsson
Útgefandi: Uppheimar
Myndir úr skilvindu drauma (ljóðabók)
Höfundur: Arngrímur Vídalín
Útgefandi: Nýhil