14. mars 2009 17:44

Umsóknir um Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs – 6. apríl 2009

Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum um Nýræktarstyrki en næsti umsóknarfrestur fyrir þessa styrki rennur út 6. apríl 2009. Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrkir til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap. Eru styrkirnir ætlaðir til að styðja við útgáfu á fyrstu verkum nýrra höfunda, verkum sem hafa takmarkaða eða litla tekjuvon en hafa ótvírætt menningarlegt gildi. Hér falla undir skáldverk í víðri merkingu þess orðs til dæmis sögur, ljóð, barnaefni, leikrit, eða eitthvað allt annað, og leitast er eftir breidd og fjölbreytni í umsóknum. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg hér á vefsíðu Bókmenntasjóðs, sjá “Styrkumsóknir” í dálknum til vinstri. Frekari upplýsingar fást á netfanginu bok@bok.is og í síma 552 8500.

 

Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Bókmenntasjóður styrkir meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis og sinnir öðrum verkefnum sem falla undir verksvið sjóðsins.

 

 
Þórbergur Þórðarson has had a considerable influence on Icelandic literature, but few of his works are available in translation. His works include Ofvitinn, Bréf til Láru, Íslenskur aðall and Suðursveit.

 

To find out about translation subsidy click here. To find out more about 19. og 20. century Icelandic literature, (and proverbs such as “blind is the bookless man”) click here.




Bókmenntasjóður |  Austurstræti 18 | 101 Reykjavik | s: 552 8500 | bok@bok.is