18. febrúar 2009 16:51
Umsóknir um styrki úr Bókmenntasjóði – 15. mars
Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum um útgáfu-, þýðinga-, ferða- og vinnuþýðingastyrki en næsti umsóknarfrestur fyrir þessa styrki rennur út 15. mars 2009. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg hér á heimsíðu Bókmenntasjóðs, sjá “Styrkumsóknir” í dálknum til vinstri. Frekari upplýsingar fást hér á heimasíðunni en einnig á netfanginu bok@bok.is og í síma 552 8500.
Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Bókmenntasjóður styrkir meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis og sinnir öðrum verkefnum sem falla undir verksvið sjóðsins.