19. desember 2008 16:02

Nýræktarstyrkir Bókmenntasjóðs 2008

18. desember síðastliðinn var tilkynnt hverjir hlutu Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs árið 2008. Athöfnin fór fram í Nýlistarsafninu. Þetta var í fyrsta skipti sem Nýræktarstyrkjum var úthlutað úr Bókmenntasjóði. Að þessu sinni voru Nýræktarstyrkir fimm talsins, að upphæð tvö hundruð þúsund krónur hver.

Alls bárust níu umsóknir um fimm styrki.  Nýræktarstyrki hlutu að þessu sinni eftirfarandi verk og höfundar:

 

Bútgáfur Nýhils (Sería smærri bóka. Þrjár (ör)ljóðabækur og eitt safn feminískra smágreina og stuttra prósa skreytt klippimyndum).

Ritstjóri: Kristín Svava Tómasdóttir

Höfundar: Hildur Lillendahl Viggósdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Ingólfur Gíslason og Dr. Usli.

Útgefand: Nýhil

 

Með villidýrum (ljóðabók) – komin út

Höfundur : Kári Páll Óskarsson

Útgefandi: Nýhil

 

Refur (ljóðabók)  - komin út

Höfundur: Emil Hjörvar Pedersen

Útgefandi: Nykur

 

Á meðan (ljóðabók)

Höfundur: Ragnar Ísleifur Bragason

Útgefandi: Ragnar Ísleifur Bragason

 

Hálmstrá (smásögur) – komin út

Höfundur: Magnús Sigurðsson

Útgefandi: Uppheimar

 

 
Þórbergur Þórðarson has had a considerable influence on Icelandic literature, but few of his works are available in translation. His works include Ofvitinn, Bréf til Láru, Íslenskur aðall and Suðursveit.

 

To find out about translation subsidy click here. To find out more about 19. og 20. century Icelandic literature, (and proverbs such as “blind is the bookless man”) click here.




Bókmenntasjóður |  Austurstræti 18 | 101 Reykjavik | s: 552 8500 | bok@bok.is