21. ágúst 2008 13:05

Styrkir til útgáfu á nýjum íslenskum skáldverkum

Bókmenntasjóður býður nú á haustmánuðum sérstaka styrki til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap. Um er að ræða fimm styrki að upphæð tvöhundruðþúsund krónur hver og eru þeir ætlaðir til þess að styðja við útgáfu á skáldverkum sem hafa takmarkaða eða litla tekjuvon en hafa ótvírætt menningarlegt gildi. Hér falla undir skáldverk í víðri merkingu þess orðs til dæmis sögur, ljóð, barnaefni, leikrit, eða eitthvað allt annað, og leitast er eftir breidd og fjölbreytni í umsóknum. Sérstök dómnefnd mun fara yfir umsóknir og skal umsóknum ásamt fylgigögnum skila til Bókmenntasjóðs fyrir 15. október.

 

Smellið hér til þess að sækja umsóknareyðublaðið.

 
Þórbergur Þórðarson has had a considerable influence on Icelandic literature, but few of his works are available in translation. His works include Ofvitinn, Bréf til Láru, Íslenskur aðall and Suðursveit.

 

To find out about translation subsidy click here. To find out more about 19. og 20. century Icelandic literature, (and proverbs such as “blind is the bookless man”) click here.




Bókmenntasjóður |  Austurstræti 18 | 101 Reykjavik | s: 552 8500 | bok@bok.is