28. maí 2008 12:23
Dvalarstyrkur þýðenda kominn aftur
Bókmenntasjóður og Rithöfundasamband Íslands auglýsa til umsóknar styrki til þýðenda íslenskra bókmennta fyrir árið 2009. Veittir eru allt að þrír styrkir til tveggja til fjögra vikna dvalar í gestaíbúðinni í Gunnarshúsi í Reykjavík.
Miðað er við dvöl vor eða haust 2009, annar tími eftir samkomulagi. Auk ferðakostnaðar og húsnæðis er styrkurinn að upphæð IKR. 20.000.-. á viku.
Umsóknir, þar sem fram kemur hvaða verk umsækjandi hefur þýtt/ætlar að þýða úr íslensku, skulu berast fyrir 1. september 2008 til Bókmenntasjóðs, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík. Úthlutun verður tilkynnt eigi síðar en 1. október 2008.