21. febrúar 2011 16:57
Umsóknir um styrki úr Bókmenntasjóði - 15. mars 2011
Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum um útgáfu-, þýðinga-, ferða- og kynningaþýðingastyrki en næsti umsóknarfrestur fyrir þessa styrki rennur út 15. mars 2011. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg hér á heimsíðu Bókmenntasjóðs, sjá “Styrkumsóknir” í dálknum til vinstri. Frekari upplýsingar fást hér á heimasíðunni en einnig á netfanginu bok@bok.is og í síma 552 8500.
Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Bókmenntasjóður styrkir meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis og sinnir öðrum verkefnum sem falla undir verksvið sjóðsins.