Um Bókmenntasjóð

 

Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Bókmenntasjóður styrkir meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að markvissri kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis og sinnir öðrum verkefnum sem falla undir verksvið sjóðsins.

 

Sjóðurinn tók til starfa á miðju ári 2007 og hefur með höndum hlutverk Bókmennta-kynningarsjóðs, Menningarsjóðs og Þýðingarsjóðs sem hafa verið lagðir niður.

 

Nánari upplýsingar um starfsemi sjóðins er að finna hér á vefnum, þar á meðal um tilhögun styrkveitinga, umsóknarfresti, eyðublöð og fleira.

 

Sjóðurinn er til húsa í Austurstræti 18, 4.hæð, 101 Reykjavík. Tölvupóstfangið er bok@bok.is og símanúmer er 552 8500.

 

Framkvæmdastjóri Bókmenntasjóðs er Þorgerður Agla Magnúsdóttir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Þórbergur Þórðarson has had a considerable influence on Icelandic literature, but few of his works are available in translation. His works include Ofvitinn, Bréf til Láru, Íslenskur aðall and Suðursveit.

 

To find out about translation subsidy click here. To find out more about 19. og 20. century Icelandic literature, (and proverbs such as “blind is the bookless man”) click here.




Bókmenntasjóður |  Austurstræti 18 | 101 Reykjavik | s: 552 8500 | bok@bok.is