Umsókn um styrk til vinnuþýðingar
Styrkur til vinnuþýðingar er veittur til þýðingar á bókarkafla eða handriti sem hægt er að nota í kynningu eða sem fyrsta skref að endanlegri erlendri þýðingu bókmenntaverks sem komið hefur út á íslensku. Vinnuþýðingarstyrkir eru lægri en hinir eiginlegu þýðingarstyrkir, að hámarki 50 þúsund krónur, og miðað er við að vinnuþýðingunni sé ætlað að vekja áhuga erlendra útgefenda eða annarra slíkra aðila. Þýðingunni skal skila til Bókmenntasjóðs áður en úthlutun fer fram og á hún vera faglega unnin. Þá skulu upplýsingar um þýðandann fylgja umsókninni. Umsóknarfrestir 15. janúar, 15. mars, 15. maí, 15. júlí, 15. september og 15. nóvember.
Vinsamlegast fyllið í alla reitina og ýtið svo á "Senda".
Umsækjandi
Verk
Þýðing
Þýðandi