Styrkir til útgáfu á íslensku

Stjórn Bókmenntasjóðs mun auglýsa eftir styrkjum til verkefna á sviði útgáfu og miðlunar íslenskra texta og verða styrkir flokkaðir í þrjá meginflokka eftir stærð og umfangi verkefnanna. Miðað er við að koma sem best til móts við þarfir umsækjenda og því verður lögð áhersla á fagmennsku og traustar kostnaðaráætlanir af hálfu umsækjenda. Ætlast er til að umsækjendur miði umsóknir sínar við þau markmið sem sett eru fyrir hvern flokk og hafi í huga frá upphafi að styrkupphæðir í hverjum flokki fylgja ákveðnum viðmiðunum. Flokkarnir þrír eru:

 

Flokkur A.Grundvallarrit eða grundvallartextar sem nýtast þorra alls almennings og hafa ótvírætt menningarlegt og þekkingarlegt gildi. Verkefni sem treysta grunnforsendur málsamfélagsins eða eru mikilvæg fyrir miðlun þekkingar á íslensku og eru kostnaðarsöm og tímafrek í vinnslu.

 

Upphæð styrkja er á bilinu 1.000.000-3.000.000

 

Flokkur B.Útgáfa, miðlun eða gerð textaefnis sem krefst talsverðrar fjárfestingar en hefur einnig skýr og raunhæf tekjumarkmið. Miðað er við að styrkir beinist að erfiðum kostnaðarþáttum sem þó eru mikilvægir fyrir viðkomandi verkefni, svo sem aukahöfundargreiðslur, myndefni, tæknivinnsla, frágangur o.s.frv. 

 

Upphæð styrkja er á bilinu 300.000-1.000.000

 

Flokkur C.Styrkir sem miða að því að styðja við bakið á verkefnum sem hafa takmarkaða eða litla tekjuvon en eru mikilvæg fyrir íslenska bókmenningu. Hér er til að mynda átt við stuðning við ýmsa vinnslu á myndskreyttum barnabókum eftir innlenda höfunda, útgáfu ljóðabóka og ritsafna með fræðilegum innangi eða formála, þróunarverkefni, verkefni í rafrænni miðlun, fræðilegt efni af ýmsum toga o.s.frv.

Upphæð styrkja 100.000–300.000

 

Stjórn Bókmenntasjóðs skipar í úthlutunarnefndir ef þurfa þykir. 

 
Þórbergur Þórðarson has had a considerable influence on Icelandic literature, but few of his works are available in translation. His works include Ofvitinn, Bréf til Láru, Íslenskur aðall and Suðursveit.

 

To find out about translation subsidy click here. To find out more about 19. og 20. century Icelandic literature, (and proverbs such as “blind is the bookless man”) click here.




Bókmenntasjóður |  Austurstræti 18 | 101 Reykjavik | s: 552 8500 | bok@bok.is