Bókmenntasjóður mun úthluta sex sinnum á ári ferðastyrkjum til rithöfunda. Um leið verður erlendum forlögum, leikhúsum, stjórnendum bókmenntahátíða o.fl. bent á þann möguleika að sækja um hluta ferðakostnaðar fyrir íslenskan höfund sem fer erlendis til að kynna verk sín. Stjórn Bókmenntasjóðs mun horfa sérstaklega til slíkra umsókna.