Bókmenntasjóður starfar eftir lögum sem sett voru í mars 2007 um um bókmenntasjóð og fleira. Þar segir meðal annars:
Hlutverk bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Hlutverk sitt rækir sjóðurinn með því að:
a. styrkja útgáfu frumsaminna íslenskra skáldverka og vandaðra rita sem eru til þess fallin að efla íslenska menningu,
b. styrkja útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslenskri tungu,
c. stuðla að kynningu á íslenskum bókmenntum hér á landi og erlendis og
d. sinna öðrum verkefnum er falla undir verksvið stjórnar bókmenntasjóðs.
Alþingi veitir árlega fé í sjóðinn til ráðstöfunar samkvæmt lögum þessum.
Smellið hér til þess að lesa lögin.