12. janúar 2010 17:31
Næsti umsóknarfrestur um vinnuþýðingastyrk úr Bókmenntasjóði - 15. janúar 2010
Styrkur til vinnuþýðingar er veittur til þýðingar á bókarkafla eða handriti sem hægt er að nota í kynningu eða sem fyrsta skref að endanlegri erlendri þýðingu bókmenntaverks sem komið hefur út á íslensku. Umsóknarfrestir eru 15. janúar, 15. mars, 15. maí, 15. júlí, 15. september og 15. nóvember.
Vinnuþýðingarstyrkir eru lægri en hinir eiginlegu þýðingarstyrkir, að hámarki 50 þúsund krónur, og miðað er við að vinnuþýðingunni sé ætlað að vekja áhuga erlendra útgefenda eða annarra slíkra aðila. Umsóknareyðublaðið er rafrænt og má nálgast hér: http://www.bok.is/islenska/styrkumsoknir/vinnuthyding/
Frekari upplýsingar í síma 552 8500 eða á netfanginu bok@bok.is