9. júlí 2009 19:11
Dvalarstyrkur þýðenda 2010
Bókmenntasjóður og Rithöfundasamband Íslands auglýsa til umsóknar styrki til þýðenda íslenskra bókmennta fyrir árið 2010. Veittir eru styrkir til tveggja til fjögra vikna dvalar í gestaíbúðinni í Gunnarshúsi í Reykjavík.
Miðað er við dvöl vor eða haust 2010, annar tími eftir samkomulagi. Auk ferðakostnaðar og húsnæðis er styrkurinn að upphæð IKR. 20.000.-. á viku.
Umsóknir, þar sem fram kemur hvaða verk umsækjandi hefur þýtt/ætlar að þýða úr íslensku, skulu berast fyrir 1. september 2009 til Bókmenntasjóðs, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík. Úthlutun verður tilkynnt eigi síðar en 1. október 2009.