9. júní 2009 10:35

Úthlutanir úr Bókmenntasjóði á fyrri hluta árs 2009

Fyrsti umsóknarfrestur um styrki til vinnuþýðinga og þýðinga úr íslensku á erlend tungumál rann út 15. janúar. Bárust sjóðnum 10 umsóknir um vinnuþýðingastyrki frá 7 aðilum að upphæð 2.111.300 kr. Stjórn sjóðsins samþykkti að veita 7 styrki, samtals að fjárhæð 230.000 kr. Að auki bárust 5 umsóknir um þýðingar úr íslensku frá 5 aðilum. Stjórn sjóðsins samþykkti að veita loforð um 4 styrki, samtals að fjárhæð 1.325.000 kr.

 

Úthlutanir úr Bókmenntasjóði vegna ólíkra verkefna dreifast nokkuð yfir árið en þann 15. mars síðast liðinn rann út umsóknarfrestur fyrir útgáfustyrki og fyrri úthlutun ferðastyrkja og styrkja til þýðinga á íslensku. Einnig voru þá afgreiddar í annað sinn á árinu umsóknir um vinnuþýðingastyrki og styrki til þýðinga á erlend mál. Alls voru samþykktar úthlutanir að upphæð kr. 19.965.000.

 

Alls bárust 102 umsóknir um útgáfustyrki frá 49 aðilum með beiðnum um styrki að fjárhæð kr. 82.7 milljónir. Stjórn sjóðsins samþykkti að veita 32 styrki til útgáfu, samtals að fjárhæð kr. 11.850.000.

 

Þá bárust 49 umsóknir um styrki til þýðinga á íslensku frá 22 aðilum með beiðnum um styrki að fjárhæð kr. 29.6 milljónir. Stjórn Bókmenntasjóðs samþykkti að veita að þessu sinni styrki að upphæð kr. 5.950.000 . Næsti umsóknarfrestur vegna þýðinga á íslensku er 1. nóvember 2009 og verða þá frekari styrkir veitti. Þá bárust 12 umsóknir um ferðastyrki og hlutu 5 aðilar styrki, alls 335.000 krónur. Næsti umsóknarfrestur um ferðastyrki er 15. október 2009.

 

Sjóðnum bárust að þessu sinni 6 styrkumsóknir vegna þýðinga á íslenskum verkum yfir á erlend tungumál að upphæð 5.280.000 og var ákveðið að úthluta til 4 verkefna, alls kr. 1.630.000. Þetta var önnur úthlutun ársins.

 

Að auki bárust 21 umsókn um vinnuþýðingastyrki. Stjórn sjóðsins samþykkti að veita 6 styrki, samtals að fjárhæð 200.000 kr.

 

Fyrri umsóknarfrestur ársins um styrki til þýðinga á íslenskum verkum yfir á norræn tungumál rann út 1. apríl. Sjóðnum bárust 8 umsóknir um styrki og var ákveðið að úthluta til 7 verkefna, alls kr. 3.000.000. Næsti umsóknarfrestur er 1. nóvember 2009.

 

Þann 6. apríl síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs, útgáfustyrki fyrir nýjan íslenskan skáldskap. Alls bárust 27 umsóknir um styrki. Stjórn sjóðsins samþykkti að veita 6 nýræktarstyrki hver að upphæð 200.000, samtals 1.200.000.

 

Alls voru samþykktar úthlutnari að upphæð 25.720.000 kr. á fyrri hluta árs 2009.

 

Hér má finna lista yfir úthlutanir styrkja úr Bókmenntasjóði á fyrri hluta árs 2009.

 

Vinsamlegast athugið að síðar verður tilkynnt hverjir hlutu Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs árið 2009.

 

 

 
Þórbergur Þórðarson has had a considerable influence on Icelandic literature, but few of his works are available in translation. His works include Ofvitinn, Bréf til Láru, Íslenskur aðall and Suðursveit.

 

To find out about translation subsidy click here. To find out more about 19. og 20. century Icelandic literature, (and proverbs such as “blind is the bookless man”) click here.




Bókmenntasjóður |  Austurstræti 18 | 101 Reykjavik | s: 552 8500 | bok@bok.is