19. desember 2008 16:02
Nýræktarstyrkir Bókmenntasjóðs 2008
18. desember síðastliðinn var tilkynnt hverjir hlutu Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs árið 2008. Athöfnin fór fram í Nýlistarsafninu. Þetta var í fyrsta skipti sem Nýræktarstyrkjum var úthlutað úr Bókmenntasjóði. Að þessu sinni voru Nýræktarstyrkir fimm talsins, að upphæð tvö hundruð þúsund krónur hver.
Alls bárust níu umsóknir um fimm styrki. Nýræktarstyrki hlutu að þessu sinni eftirfarandi verk og höfundar:
Bútgáfur Nýhils (Sería smærri bóka. Þrjár (ör)ljóðabækur og eitt safn feminískra smágreina og stuttra prósa skreytt klippimyndum).
Ritstjóri: Kristín Svava Tómasdóttir
Höfundar: Hildur Lillendahl Viggósdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir, Ingólfur Gíslason og Dr. Usli.
Útgefand: Nýhil
Með villidýrum (ljóðabók) – komin út
Höfundur : Kári Páll Óskarsson
Útgefandi: Nýhil
Refur (ljóðabók) - komin út
Höfundur: Emil Hjörvar Pedersen
Útgefandi: Nykur
Á meðan (ljóðabók)
Höfundur: Ragnar Ísleifur Bragason
Útgefandi: Ragnar Ísleifur Bragason
Hálmstrá (smásögur) – komin út
Höfundur: Magnús Sigurðsson
Útgefandi: Uppheimar