7. maí 2008 15:49
24 milljónum úthlutað úr Bókmenntasjóði
Bókmenntasjóður veitir reglulega styrki til útgáfu bókmennta og bókmenntaþýðinga en jafnframt veitir sjóðurinn íslenskum höfundum styrki til ferðalaga og stendur að kynningu á íslenskum bókmenntum erlendis.
Úthlutanir úr sjóðnum vegna ólíkra verkefna dreifast nokkuð yfir árið en þann 15. mars síðast liðinn rann út umsóknarfrestur fyrir útgáfustyrki og fyrri úthlutun þýðingarstyrkja. Alls voru samþykktar úthlutanir að upphæð kr. 24.500.000.
Alls bárust 104 umsóknir um útgáfustyrki frá 59 aðilum með beiðnum um styrki að fjárhæð kr. 102 milljónir. Stjórn sjóðsins samþykkti að veita 32 styrki til útgáfu, samtals að fjárhæð kr. 13.000.000. Þá bárust 68 umsóknir um þýðingarstyrki frá 23 aðilum með beiðni um styrki að fjárhæð kr. 42.000.000. Stjórn Bókmenntasjóðs samþykkti að veita að þessu sinni 30 styrki til þýðinga að upphæð kr. 8.150.000 . Næsti umsóknarfrestur vegna útgáfu þýðinga er 1. nóvember 2008 og verða þá frekari styrkir veittir. Þá bárust 12 umsóknir um ferðastyrki og hlutu 10 aðilar styrk uppá alls 580.000 krónur.
Sjóðnum bárust að þessu sinni 15 styrkumsóknir vegna þýðinga á íslenskum verkum yfir á erlend tungumál að upphæð 20.000.000 og var ákveðið að úthluta til 10 verkefna alls kr. 2.770.000. Í framhaldi af því er rétt að vekja athygli á að stjórn Bókmenntasjóðs hefur ákveðið að bjóða uppá þróunarstyrki til þýðinga á íslenskum bókmenntum yfir á erlend tungumál. Um er að ræða styrki til að þýða bókarkafla eða tilraunaþýðingu sem hjálpað getur við frekari kynningu á verkinu og umsóknarfrestir fyrir þann syrk eru þeir sömu og fyrir þýðingar úr íslensku: 15. janúar, 15. mars, 15. maí, 15. júlí, 15. september og 15. nóvember.
Í þessu skjali eru yfirlit yfir úthlutanir sjóðsins vegna útgáfu og þýðinga í apríl 2008